15.01.2009 14:09:10 / Sibbi
2009 hafið.
Eins og sést hefur hef ég ekki alveg nennt þessu upp á síðkastið þar sem að ég held allir sem ég þekki eru líka á Facebook að þá nenni ég varla að gera þetta tvisvar sinnum.
Áramótin voru fín hjá mér en ekki neitt djamm ef svo mætti kalla. Var heima hjá Má Wardum með honum og konu hans ásamt Þóri og Íris sem er með mér í bekk og Jóa eilífðarungling sem býr við hliðina á mér hehe.
Skutum einhverju upp þar og ég náði nokkrum skemmtilegum myndum af því sem eru komnar á Facebook. Eftir það að þá fór ég áleiðis heim og fékk far þegar að ég sá fólk sem ég þekkti og var að fara í bílinn sinn. Það var svo sem ágætt.
Fór þá bara heim og horfði á skaupið sem ég dó nú ekki af hlátri yfir en var vissulega bara einn að horfa á það sem gerði upplifunina ekki kannski mjög fyndna, þarna vantaði nú bróðir minn með mér.
Svo tók alvaran við þegar að maður fór að læra undir efnafræðipróf sem að ég svo á endanum skítféll í, eins og reyndar allir Íslendingarnir og 3 Danir. Tek það aftur upp 30 janúar sem er föstudagurinn í fríviku. Það mun einkenna næstu daga hjá mér allavega, þetta helvítis efnafræðipróf.
Í dag var ég svo að komast að því að tveir félagar mínir verða ekki með mér á seinni önninni heldur fara beint í það sem heitir iðnfræðingur. Þeir eru með nægar einingar virðist vera til komast í það og svo fara þeir þaðan í vélaverkfræðinginn og fá þá tvær gráður sem er bara fínt fyrir þá en mér hugnast almennt ekki breytingar og þetta er ein af þessum leiðinlegu verð ég að segja. Er nánast með tárin í augunum að skrifa þetta hérna núna.
Læt þetta duga að sinni og það er viðbúið að þessi færsla muni hanga eitthvað hérna.
Bless í bili.