Spjallið hans Sibba

Sibbi = gott dæmi um fegurð

04.04.2009 08:42:04 / Sibbi

Sumarið komið

Ákvað að henda smá færslu hingað inn.
Núna er laugardagurinn 4. apríl og veðrið er frábært. Ég var nefnilega búinn að heyra þetta áður en ég kom, að sumarið kom bara skyndilega þann 1. apríl og ég get staðfest það aldeilis.

Núna er páskafríið byrjað en það verður ekki stanslaust frí því við ætlum að byrja að læra eitthvað fyrir stærðfræði A.
Þar mun ég stóla talsvert á Jakob félaga minn að vera mér innan handar.
Betra að byrja fyrr og vera eitthvað á hverjum degi frekar en að drepa sig á nokkrum dögum fyrir prófin.

Annars hefur svo sem ekki mikið skeð síðan að síðasta innihaldslitli pistill birtist. Er aðeins að laga mataræðið og reyna að hreyfa mig meira enda er veðrið aldeilis til að hjálpa til með það sem betur fer.

Er orðinn eini eftirlifandi Íslendingurinn í eðlisfræði en sem betur fer hefur ekki verið hoggið í danska vinahópinn minn því ég mun þurfa á þeim að halda að einhverju leiti í prófundirbúningi.
Ekki mjög langt í afmælið mitt núna en það er á mánudegi sem er nú ekki beint skemmtilegasti dagur vikunnar. Freistandi að taka sér frí þann dag og kíkja kannski til Árósa eða eitthvað. Hef ekki komið þangað síðan við fórum í skáskólaferðalag þangað í óperuna. Það var reyndar snilldarferð.

Þorrablót okkar horsensbúa var haldið í febrúar og var það alger snilld. Tók lagið með Á móti sól og það eru til myndbönd af því sem er gaman að sjá. Datt aðeins út úr tóninum í Suspicious Minds en við horfum framhjá því haha. En það var einstök upplifun að fá að taka lög á sviði með live undirspili og geta einnig sagt það að hafa haft Magna Ásgeirsson sem bakrödd hjá sér.

Að öðru leiti er dvölin hérna mjög fín. Eina sem angrar mann er títtnefnt stærðfræðiskilningsleysi en sumt þar gengur ágætlega og meðal annars hlutar sem virðast vega þungt í prófunum.

Svo saknar maður að sjáfsögðu litla mannsins mikið og það étur mann stundum að innan. Suma daga meira en aðra. Þá skoðar maður myndir og myndbönd af honum og heyrir í Guggu.
Hann nennir reyndar ekki alltaf að taka símann eða sitja fyrir framan tölvuskjáinn sem er nú reyndar nett fyndið, en til að mynda um daginn þegar að einn erfiðasti dagurinn hvað þetta varðar var hjá mér að þá hringdi ég í Guggu og hún lét hann taka símann og að heyra hann segja ,,hæ pabbi,,  var vítamínsprauta sem ég þurfti ekkert smá á að halda þann dag.

Það er fyrst núna sem að maður væri til í að eiga bíl hérna úti. Verð reyndar með bíl í sumar sem að Ægir og Sigurlaug eiga og það er meiriháttar og mun ég seint geta fullþakkað þeim fyrir það.

Læt þetta duga að sinni og skal reyna að virkja þetta aðeins aftur.

Sibbi kjúklingasalats og líka pulsukall sko:)




» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 14:09:10 / Sibbi

2009 hafið.

Eins og sést hefur hef ég ekki alveg nennt þessu upp á síðkastið þar sem að ég held allir sem ég þekki eru líka á Facebook að þá nenni ég varla að gera þetta tvisvar sinnum.

Áramótin voru fín hjá mér en ekki neitt djamm ef svo mætti kalla. Var heima hjá Má Wardum með honum og konu hans ásamt Þóri og Íris sem er með mér í bekk og Jóa eilífðarungling sem býr við hliðina á mér hehe.

Skutum einhverju upp þar og ég náði nokkrum skemmtilegum myndum af því sem eru komnar á Facebook. Eftir það að þá fór ég áleiðis heim og fékk far þegar að ég sá fólk sem ég þekkti og var að fara í bílinn sinn. Það var svo sem ágætt.
Fór þá bara heim og horfði á skaupið sem ég dó nú ekki af hlátri yfir en var vissulega bara einn að horfa á það sem gerði upplifunina ekki kannski mjög fyndna, þarna vantaði nú bróðir minn með mér.

Svo tók alvaran við þegar að maður fór að læra undir efnafræðipróf sem að ég svo á endanum skítféll í, eins og reyndar allir Íslendingarnir og 3 Danir. Tek það aftur upp 30 janúar sem er föstudagurinn í fríviku. Það mun einkenna næstu daga hjá mér allavega, þetta helvítis efnafræðipróf.

Í dag var ég svo að komast að því að tveir félagar mínir verða ekki með mér á seinni önninni heldur fara beint í það sem heitir iðnfræðingur. Þeir eru með nægar einingar virðist vera til komast í það og svo fara þeir þaðan í vélaverkfræðinginn og fá þá tvær gráður sem er bara fínt fyrir þá en mér hugnast almennt ekki breytingar og þetta er ein af þessum leiðinlegu verð ég að segja. Er nánast með tárin í augunum að skrifa þetta hérna núna.

Læt þetta duga að sinni og það er viðbúið að þessi færsla muni hanga eitthvað hérna.

Bless í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 03:26:05 / Sibbi

Aðfangadagur hafinn.

Þetta er reyndar skrifað eftir miðnætti þannig að hann er kannski ekki hafinn í þeim skilningi sem maður talar venjulega.
Er búinn að vera talsvert á þeytingi síðan að ég kom hingað en er alls ekkert þreyttur sem slíkt. Farið í Reykjavík á föstudaginn síðasta og einnig á sunnudaginn og mánudaginn. Fer líklega ekki meira í bæinn það sem eftir er af minni dvöl hérna þessi jólin.
Dreifði jólakortunum með Settu og Jens á sunnudaginn og það var eins og alltaf mjög gaman. Heimsótti nokkra í örfáar mínútur, það er að segja þá sem voru heima og vakandi. Reyni að hitta á einhverja á annan í jólum og kannski á laugardeginum líka. Því miður verða einhverjir hunsaðir en það er nú bara eðli svona stuttra heimsókna.
Hef verið í góðu yfirlæti hér hjá Friðrik og Önnu and the fam.
Líka skrítið að hafa ekki hitt á þá sem maður er búinn að umgangast nánast daglega síðan í ágúst. En það breytist strax í janúar.
Var mjög skemmtilegt að sjálfsögðu að hitta á litla manninn daginn sem ég lenti.og aftur á laugardaginn. Einnig hittumst við í smástund í Kringlunni á mánudaginn þegar að ég fór með Kristíni í Reykjavík og hitti þar á Guggu og Ólana tvo.
Læt þetta duga að sinni elskurnar mínar að þessu sinni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 00:36:12 / Sibbi

Heimferð

Á morgun, fimmtudag, er komið að þeim degi sem virtist vera í órafjarlægð í september þegar að maður var liggur að kikna undan viðbrigðunum við að fara í skóla og vildi á tímabili bara fara aftur heim. En sem betur fer henti maður þeirri krakkahugsun út frá sér en varð vissulega hugsað til þess dags sem að maður myndi vakna um morguninn til að fara í lestina áleiðis á Kastrup.
Núna er bara komið að þessum degi á morgun (raunar seinna á eftir:)) og manni finnst eins og það hafi verið í síðustu viku sem að þessar pælingar fóru fram.
Vakna eitthvað rúmlega 6 í fyrramálið og sæki strákinn sem býr beint fyrir ofan mig á efstu hæðinni hann Bjössa Stefáns og við förum héðan að sækja Benna félaga minn sem lánaði mér bílinn ef ske kynni að hann myndi sofa eitthvað yfir sig.
Planið hjá mér í fyrramálið er að skrifa kortin í lestinni og helst ná að klára þau áður en ég fer um borð í flugvélina. Þar er vissulega minna pláss en samt hægt að vinna en ég vill bara slappa af þar og horfa á sjónvarpið.
Er einnig viss um að pínu erfitt verður að verjast tárunum við tilhugsunina um að sjá soninn aftur eftir meira en 5 mánuði. Bara það að skrifa þessar hugsanir hérna inn verða þess valdandi að ég verð að þurrka augun til að klára færsluna.
Keypti jólagjöfina hans í dag og einnig smá aukagjöf sem ég gef honum við að hitta á hann á morgun. Það verða aldeilis fínir næstu tveir dagar hjá honum. Ég hitti hann á morgun og svo hittir hann fósturpabba sinn daginn eftir. Upphaflega ætlaði ég að koma líka á föstudaginn og þá hefðum ég og Óli Pétur verið í sömu vél, það hefði nú ekki verið slæmt.
Var í enskuprófi, munnlegu, í dag og náði hæstu einkunn. Þó að þetta sé það fag sem að ég er öruggastur í að þá gekk ég ekkert að neinu vísu og lærði vel fyrir það og uppskar árangurinn eftir því.
Fékk að vísu ekki erfiðar spurningar úr texta sem að við vorum búin að lesa fyrr í vetur og gat talað vel í kringum þær þannig að þær voru allavega nógu ánægðar með það til að gefa mér 12 sem er hæsta einkunn í dönsku skólakerfi.
Læt þetta duga að sinni þó ég vildi gjarnan segja mun meira en svona að endingu vill ég óska þeim Íslendingum sem ég þekki hérna úti og hafði ekki tök á að kveðja innilegra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég verð hins vegar hérna um áramótin og mun líklega hreiðra um mig í Mosanum á gamlárskvöld.
Bless að sinni öllsömul.

Sibbi


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 16:49:33 / Sibbi

Jólakort til mín.

Þetta er nú bara skrifað ef einhver sem les þetta og er heima á Íslandi ætlar að senda mér jólakort að þá er langþægilegast að senda það til bróður míns hans Friðriks á Faxabraut 40 B 230 Keflavík.
Annars er ég að fara í enskupróf á morgun og eftir það verður pakkað niður og svo verða send jólakort til þeirra sem búa hérna í bænum um kvöldið í skemmtigöngu. Veðrið heldur áfram að vera dásamlegt hérna eins og reyndar allan síðasta mánuð.
Var að skoða reyndar vetrarmyndir frá dönskum félaga mínum að nafni Jakob og það getur greinilega snjóað alveg helling hérna og þá meina ég íslenskan helling. Þeir segja reyndar að það hafi ekki gerst í talsverðan tíma og sé yfirleitt búið um miðjan mars.
Það er ágætt að vita.
Heyrumst síðar.



» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 02:28:03 / Sibbi

Jólamatur og Rúnar Júlíusson.

Núna er ég heima hjá mér eftir að hafa verið í jólamatarveislu heima hjá Sævari bekkjarfélaga mínum. Þar vorum við Íslendingarnir og flestir Danirnir. Einnig Danir sem við þekkjum minna en kynntumst betur þetta kvöld.
Fjölbreyttur matur var í boði en mest um hamborgarhrygg og fleskesteg held ég að þetta heiti. Kökur voru líka og Þórir Wardum írisarmaður kom með mergjaða súkkulaðiköku. Ég held bara að ég byrji með honum hahaha:)

En við að skrifa þetta er ég einnig að hlusta á upptökuna af jarðarför snillingsins Rúnna Júll. Við að lesa fréttina á mbl.is varð ég algerlega eyðilagður og var alveg úr leik það sem eftir var dags í skólanum.
Mín kynni af honum voru tvenns konar. Í maí 2002 bað Davíð Scheving félagi minn um að vera með sér í tímabundnu útvarpi sem hann var með vikuna fyrir kosningarnar til bæjarstjórnar. Hann mætti þá bara uppúr þurru með bunka af diskum sem við máttum gefa í beinni útsendingu. Að sjálfsögðu fengum við hann í smá viðtal í tilefni þess. Það var auðsótt mál eins og reyndar allt sem hann var beðinn um að mér skilst og ef hann gat mögulega orðið við því.

Við náðum ekki að gefa alla diskana vegna þess að við vorum í sjálfu sér með stanslaus viðtöl og uppákomur þannig að við áttum sjálfur minnir mig 5 diska eftir þegar að þessu útvarpi lauk. Þar á meðal var svona best of diskur með honum og einnig best of diskur frá Geimsteini og þar eru margir gullmolar. Þetta hlusta ég stundum á og hef gaman að.

Hitt skiptið var síðar sama ár reyndar. Um jólin 2002 gerði ég jólalag en árið áður hafði ég beinþýtt elvisjólalag en ekkert gert sérstak við það svo sem. Þetta ár hins vegar vildi ég setja þetta á disk, fyrir mig allavega. Svo ég hringdi í hann með þá opnun sem að oftast dugði í Keflavík ef fólk var ekki klárt á því hver ég var en hún var ,,blessaður, Sigurbjörn heiti ég og stundum kallaður Sibbi Presley (hahahaha:)),, hann vissi alveg hver ég var og spurði meira að segja hvort að ég væri ekki enn að elvisast reglulega:)
Ég sagði að það væri minna en áður en samt alltaf eitthvað. En svona til að enda þetta að þá sagði ég við hann að ég vildi gera þetta lag og það var auðsótt mál. Kiddi í Hjálmum og núna Baggalút tók þetta reyndar upp en Rúnni kom og skoðaði þetta einhverntímann og spjallaði við mig og Jönu sem söng dúett með mér í laginu.
Þannig að mín kynni af honum hafa verið persónuleg líka og ég tók þetta mjög nærri mér eins og áður segir og votta ég Mæju og öllum öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Þá er komin ein gröf í viðbót sem maður vitjar í kirkjugarðinum um jólin.

Styttist mikið í heimför núna og orðin pínu óþreyjufullur að komast aðeins heim. Verður vissulega fínt að koma hingað aftur út þar sem að þetta verður ekki nein afslöppun heima að stærstum hluta.

Læt þetta hins vegar duga núna í bili.




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 06:59:31 / Sibbi

Desember.

Þá er desember runninn upp og maður er að upplifa jólaundirbúning í öðru landi í fyrsta skipti. Það er nú stór munur á skreytingum Dana og Íslendinga og þá okkur í vil. Vissulega er rafmagnið ódýrara heima en hérna, ennþá að minnsta kosti allavega.
Hins vegar skynjar maður líka meiri rósemi hérna yfir fólkinu. Maður er reyndar ekki inni á dönskum heimilum en það hlýtur að endurspegla sig í fólkinu sjálfu.
Ég hins kem heim og verð sjálf jólin heima og er það að langstærstu leiti pabba að þakka. Heittelskaður bróðir og hans fjölskylda fá svo heiðurinn af því að hýsa mig um hátíðarnar.
Upplifði ekki fyrr en um helgina sem leið tilhlökkun að fara heim. Er aðeins óþreyjufullur að komast þangað núna. Verð vissulega talsvert á þeytingi en það er bara fínt. Sé reyndar pínu eftir því að hafa ekki pantað flug heim á mánudeginum 29. í staðinn fyrir á sunnudeginum 28. En það verður bara að hafa það.
Verð nú með einhverju fólki sem ég þekki í flugvélinni þannig að það verður fínt. Næ jafnvel að skrifa einhver jólakort í lestinni til Kastrup, þar sem ég verð í myrkri allavega helminginn af ferðinni þangað.
Fer bara í eitt próf fyrir jól en svo er efnafræðipróf 7. janúar og þess vegna er ég nú líka að koma aftur til Horsens í fyrra fallinu.
Fékk nú smá lýsingu á Horsensáramótum og það hljómar nú ekki illa hvernig þau eru. Vissulega er það skilst mér mest í Mosanum og maður verður líklega þar og gengur á milli húsa og sníkir mat og slíkt hahaha:)
Hér er búið að vera logn í meira en hálfan mánuð og án efa er það sá hluti breyttrar búsetu sem ég kann best við.
Veit ekki hversu margir eru enn að lesa þetta en kær kveðja frá mér til ykkar allra.

Sibbi danski pulsustrákur:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 11:15:28 / Sibbi

Aðventan byrjuð.

Núna er fyrsti sunnudagur í aðventu og það er tímasetning sem ég hef alltaf hlakkað meira og meira til í seinni tíð.
Finnst formið á aðventuljósum mjög fagurt og einnig birtan af þeim.

Í fyrra átti ég 8 aðventuljós, eitt í hvern glugga og svo eitt sem ég var með á sjónvarpsskápnum. Við flutningin hins vegar að þá gaf ég Ragga, bróður hennar Guggu, tvö af þeim ásamt jólatrénu mínu og megnið af kúlunum og öllum seríunum sem fóru á það.

Ég mun skreyta í þremur skömmtum. Er búinn að setja upp allt skraut sem ég kem fyrir og í gær setti ég upp seríurnar og aðventuljósin og í vikunni eða í dag set ég upp jólatréð. Sé samt til með það. Er bara með lítið tré en er samt smekklegt. Ég og Gugga vorum með þetta tré á píanóinu hér áður fyrr.

Hins vegar er það algjör staðreynd að þetta litla rými sem ég bý í er ákaflega jólalegt hjá mér þó að ég segi sjálfur frá. Fékk einmitt tvær heimsóknir í gærkvöldi. Fyrst frá Benna mínum sem var með mér á meðan að ég setti upp megnið af ljósunum og svo komu skyndilega Jói nágranni, Ásgerður ofurskutla og Andri verðandi viðskiptaverkfræðingur í heimsókn til að ná í bjórkassa sem ég keypti fyrir Ágústu ofurskutlu (voðalegar ofurskutlur eru þetta alls staðar:)) fyrir nokkrum misserum síðan og ég hafði geymt í kæli fyrir hana. Þau höfðu reynt að hringja í mig en ég var með heyrnartólin á og var að hlusta á gömul íslensk jólalög þannig að það fór framhjá mér þegar að þau hringdu.
Þeim leist allavega vel á sýndist mér og það er gott mál ef fólk getur upplifað jólastemmningu við að koma inn til mín.

Það eina sem vantar á þessum tímapunkti er jólatréð. Annað er komið upp.

Í síðustu viku tók ég þátt í myndatöku fyrir nýja bæklinga sem á að gera fyrir skólann í markaðssókn. Ég sagði við konuna sem að fer fyrir þeirri vinnu að leggja áherslu á að byggingartæknifræðin muni byrja á ensku á næsta ári. Þegar að ég frétti það að þá var ég ákaflega ánægður og svona nett öfund hjá þeim sem eru komnir lengra í því fagi hahahaha.

Svo ég svari þér Vallý að þá já, ég kem heim um jólin. Lendi heima um eftirmiðdaginn 18. desember sem er fimmtudagur og fer aftur heim að morgni sunnudags 28. desember. Sá aðeins eftir því að fara heim á sunnudeginum en það kostaði svo svakalega mikið að breyta því yfir á mánudagsbrottför að ég hætti við það. Verður bara að hafa það.

Í gær labbaði ég niður í bæ að skoða jólaþorpið sem er árviss hérna í Horsens. Varð þá hugsað til minnar fyrrverandi hennar Guggu og mömmu hennar hana Ólu. Ekki ósvipaðir básar og hún og mamma hennar hafa verið að selja í í jólaþorpinu í Hafnarfirði. Örlítið öðruvísi hönnun en að öðru leiti svipað konsept svo ég sletti aðeins.

Þarna var mjög mikið um flotta handverksmuni en ekkert af leirvörum eins og þær sérhæfa sig eða gerðu síðast þegar að ég vissi allavega. Eitthvað var um glermuni en mest var um handsaumaðar dúkkur og slíkt. Gaman að sjá öðruvísi hönnun en er algeng heima. Þeirra vörur ættu samt fullt erindi hérna svo ég sé hreinskilinn.

Akkúrat núna þegar að þetta er skrifað að þá er talsverð þoka hérna og eiginlega sú mesta sem ég hef séð síðan að ég kom hingað.

Seinna í dag er veisla heima hjá Benna mínum sem er sameiginleg afmælisveisla hans og Ægis. Benni á afmæli á þriðjudaginn og Ægir næstu helgi en næsta laugardag hins vegar er stór veisla sem við ætlum að halda með Dönunum heima hjá Sævari þannig að það var útilokað að hafa tvær veislur sömu helgina.

Miðað við hvernig veðrið er heima að þá er maður mjög heppinn. Það hlýnaði aðeins núna í seinni hluta vikunnar þannig að næturfrostið hvarf. Samt ekkert hlýtt þannig að maður hætti að nota góða jakkann sinn hahaha.

Læt þetta duga að sinni í dag og látið heyra í ykkur endilega elskurnar mínar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 12:29:17 / Sibbi

Allt og ekkert.

Bara svona til að halda blogginu við er kannski ágætt að tala um eitthvað hérna. Til að byrja með er svo sem ekki mikið búið að ske síðan að síðasta færsla fór fram. Megnið af bekknum fór saman á James Bond sem ég verð bara að segja að var ekkert sérstök því miður. Er samt að fíla Daniel Craig ágætlega. Það bara vantar að hann sé með einhver svona gadgets sem að Jón Jónsson hefur ekki kost á og einnig vantar orðið sárlega Bond bíl.

Þannig að þeir mega vanda sig betur við næstu mynd. Fyndið að Indiana Jones, James Bond, og The Mummy hafa allar verið með verri myndir en maður á að venjast. Einnig finnst mér Die Hard 3 ennþá best. Bourne myndirnar hafa hins vegar skánað með hverri mynd.

Á föstudagskvöldið síðasta að þá greip mig einhver geðbilun og ég setti upp megnið af jólaskrautinu mínu að ljósum og trénu undanskildu. Það verður gert næstu helgi. Veit samt ekki alveg hvernig hefðin er í Danmörku, er bara með marglitar seríur og það er nú ekki mikið til af þeim í búðum hérna.
Bærinn sjálfur er búinn að setja upp seríur niðrí bæ en ekki verður kveikt á þeim fyrr en næstu helgi og þá hefst líka markaður niðrí bæ sem er alveg fram yfir helgina fyrir jól ef ég er að lesa þetta rétt. Danir nefnilega skilst mér taka niður allt jólaskraut sem er til sölu og setja upp áramótaskraut. Ég mun upplifa það vegna þess að ég verð hérna yfir áramótin en ekki heima. Það verður spes að vera ekki heima í kringum fólkið sitt á þessum tíma en það verður bara að hafa það.

Veðrið er langoftast mjög fínt hérna en það kom smá snjór á föstudaginn en hann var að sjálfsögðu horfinn eftir um þrjá klukkutíma en náði að endast aðeins lengur á skuggasvæðum. Hleypti nú smá jólafílíng í mann og ætli það hafi ekki verið þess vegna sem að maður ákvað að setja eitthvað upp.

Svo get ég loksins sett upp smá jólaland eftir 3 ára stopp. Ég hafði nefnilega eins og asni hent öllu fólkinu og dýrum og þess háttar í fyrra en vissi það ekki fyrr en ég fór að setja það upp að ég átti bara tré. Árið þar á undan bjó í íbúð sem að bauð ekki upp á þetta almennilega.

En Setta og Jens gáfu mér hráefni í það í jólagjöf á síðasta ári og ég gat notað það núna. Vissulega er plássið afar takmarkað en samt nóg fyrir það sem ég á.

Tveir af mínum dönsku vinum þeir Michael og Jakob sem eru alveg frábærir strákar reyndar fóru af stað með herferð á Facebook um að ég yrði valinn forseti Facebook og það er óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið fín á þremur dögum komu 200 manns í þá grúbbu hahaha.

Núna er maður í miklum jólagjafapælingum, hvað á gefa fyrir mikið, á maður að sleppa einhverjum og þá hverjum. Ég hugsa að það muni á endanum borga sig fyrir mig að kaupa þetta heim þó að það geri dvölina heima talsvert stressandi. Enda var það nú líka liður í því að gera hana aðeins rýmri að koma fyrr heim en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

Ekki er enn búið að ganga frá þessu veseni með vatnslögnina heima og á meðan hækkar og hækkar danska krónan og maður situr bara og getur ekkert gert og sér sína innistæðu rýrna meira og meira. Takk fyrir elskulega króna hahaha:)

Ef maður væri heima á Íslandi að þá gæti bara vel verið að maður færi niðrá Austurvöll til að mótmæla eða eins og Gugga talaði um á Facebook hjá sér að fara fyrir utan löggustöðina og grípa nokkur egg hahaha:)

Maður hefur kannski of miklar áhyggjur af hlutunum. Það er nú eitt sem einkennir mig dálítið verð ég að viðurkenna. Maður getur alltaf tekið sér námsfrí eina önn og unnið ef maður lendir í miklum ógöngum.

Nóg um það í bili. Ég var nú að skoða aðeins fjölmiðlafræði í háskólanum í Árósum og get ekki neitað að það kveikti alveg í mér. Einnig hefur ljósmyndun togað helling í mig og sérstaklega undanfarið. En sjáum til.

Hef horft núna á þrjár jólamyndir og hlustað eitthvað á jólalögin og það verður nú að viðurkennast að íslensku lögin eru nú þau lög sem verða langoftast fyrir valinu. Núna skilst mér að sé að koma út heima 100 erlend jólalög en ég efast ekki um að ég eigi hvert einasta lag þar í allavega 5 útgáfum:)

Læt þetta duga að sinni elskurnar mínar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 18:26:17 / Sibbi

Smá sibbatölfræði:)

Ég er nýbúinn að láta setja upp fyrir mig í tölvunni svolítið sem heitir stumbleupon.com og það er frábært. Datt meðal annars inn á þessa síðu hérna þar sem að maður gat stimplað inn afmælisdaginn sinn og þá komu alls konar tölfræðistaðreyndir um mann sem er gaman að skoða.

Síðan heitir dayofbirth.co.uk   og þetta er um mig:)

Results for 27th April 1976* :

  • You were born on a Tuesday.
  • Your star sign is Taurus.
  • Your birthstone is Diamond.
  • The season was Spring.
  • You were born in the Chinese year of the Dragon.
  • The US President was Gerald Ford (Republican).
  • The UK Prime Minister was James Callaghan (Labour).
  • You are 32 years 6 months 25 days old.
  • It is 156 days until your next birthday.
  • In dog years you are 224 years old.
  • You are 11,897 days old.
  • You are approximately 285,546 hours old.
  • You are approximately 1,027,966,974 seconds old.
Læt þessa litlu færslu duga að sinni.
Geri frekar betri færslu þegar að ég nenni því :)



» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 22:16:04 / Sibbi

Fimmtudagskvöld

Já núna er semsagt fimmtudagskvöld og ég sit og hlusta á Kenny Rogers X-mas. Hvað þetta helvíti X stendur fyrir hef ég aldrei skilið. Hvernig þríhyrningaregla eða finna út mólarmassa eða hröðun bíls er reyndar líka eitthvað sem ég á líka erfitt með en það er önnur og sorglegri saga.

En ef maður pælir í því að þá er rosalega oft sem að fyrsta plata/diskur tónlistarmanna heitir eftir þeim sjálfum. Elvis var þar engin undantekning. En þá er ég líka að tala um fyrstu plötuna sem innihélt meira en tvö lög. Það var nú yfirleitt ekki venja á þessum tímum að skíra tveggja laga plötur neinum nöfnum.

Alveg að öðru. Það hefur svo sem ekki mikið skeð síðan frá hinni innihaldslitlu bloggfærslu í síðustu viku. Ég og Ægilegur fórum vissulega til Þýskalands og fórum bæði í Scandinavian Park og Cittipark (já það er skrifað svona:)). En þar sem að ég var tiltölulega nýbúinn að fylla kælinn og frystinn með heilsu (túlkist að vild:))fæði að þá keypti ég nú ekki mikinn mat. Fyllti hins vegar á gosbirgðirnar mínar sem voru orðnar ansi rýrar.

Gos er ódýrara í Scandinavian park en annað sýnist mér vera ódýrara í Cittipark og einnig mun meira úrval þar.
Fyllti á lagerinn af prenthylkjum og við athuguðum einnig með reiknivélar en þeir áttu ekki neitt í áttina að því sem við þurftum því miður því að við vorum nú alveg nett að leita að því líka.

Nema það að í dag að þá ákvað ég að hafa samband við reiknivélar.is og spyrja hvort að ef ég myndi kannski kaupa af þeim 3 reiknivélar hvort að þeir gætu sent þær til Danmerkur okkur að kostnaðarlausu. Ég og Ægir og allavega einn Dani myndum þá kaupa eitt stykki hver. Nei nei þá er það ekki hægt, þeir mega ekki selja til Danmerkur, það þarf einhver að kaupa þær beint af þeim og svo að senda þær til okkar hingað. Talandi um skrítið sjónarmið á þessum ALLRA síðustu og VERSTU tímum að henda frá sér sölu fyrir tæplega 70 þúsund.

Sjáum til með þetta allavega. En hins vegar borgar sig fyrir okkur að kaupa þær heima. Núna borgar sig hreinlega fyrir mig að fara með tóma tösku heim um jólin og fylla hana af ýmsu smádóti eins og til dæmis kertum og slíku sem ég nota mikið af hérna. Kannski mun borga sig að kaupa prenthylkin heima líka eða semsagt biðja einhvern sem ég þekki heima að kaupa það og senda hingað. Hvern hefði grunað að þetta yrði íslenskur raunveruleiki, að það myndi borga sig að kaupa heima og taka með sér út.

Enda skilst mér á pabba að það sé ákaflega lítið að gera á grænu hliði í tollinum þó að hann sé nánast ekkert þar lengur heldur er hann komin á besta póstinn sem er brottförin. Enda sjálfsagt mál finnst mér þegar að menn eru búnir að skila inn rúmlega 40 árum í starfi og nokkur ár eftir meira að segja.

Og meira af heiðursmanninum honum föður mínum. Hann mun borga fyrir mig stærstan hluta af fargjaldinu heim núna um jólin sem kemur nú reyndar ekki til af góðu því að Flugleiðir leyfa fólki ekki að nota punktana sem það á eftir 15. desember og þar til eftir áramót, það er ákaflega fallegt af þeim og ég ætlaði að hætta við að koma heim um jólin án gríns en hann tók það nú ekki í mál blessaður kallinn heldur heimtaði að borga ferðina að langmestu.
Það var nú ekki málið að leyfa honum að gera það og auðvitað léttir fyrir mig því að annars hefði liðið mjög langur tími sem ég hefði ekki séð soninn og það hefði verið erfitt. Sýnist hann nú búinn að stækka talsvert síðan að ég sá hann síðast sem var 13.júlí síðastliðinn eða daginn áður en ég fór út.

Núna eru jólin að byrja hérna smátt og smátt og verið að skreyta bæinn, ekki samt búið að kveikja á neinu ennþá en ég held að það sé fyrstu helgina í aðventu og þá kemur líka jólasveinninn í bæinn með skipi í höfnina og allt voða skemmtilegt að mér skilst. Ætla nú ekki að sleppa því get ég sagt ykkur og að sjálfsögðu tek ég myndavélina með eins og reyndar allt sem ég fer að þá er hún með hehehe.

Enda hefur þessi vetur verið skráður niður MJÖG vel á mynd sem aðrir í mínum bekk njóta nú vel líka ásamt dönunum. Mínar lýsingar á Facebook eru á ensku svo að þeir skilji það sem ég er að segja því ég er að sjálfsögðu oft að tala um þá líka.

Núna er sá fyrsti sem ég þekki að fara að fara heim, en það er heiðursmaðurinn og tískudrósin hann Davíð Páll sem að hjálpaði okkur að bera úr gámnum og inn í sendibílinn og svo þaðan inn í íbúðina. Hann setti sitt dót inn í gám núna á þriðjudaginn sem var og ég kom um klukkan17:00 en þá hafði herinn sem hann hafði fengið í verkið klárað að setja allt inn í gáminn á hraðferð og ég fékk bara að hjálpa honum með að setja inn ákaflega léttan skáp. Verður synd að missa þetta tákn glæsimennsku úr bæjarfélaginu:)

Í gær var ekki kennsla hjá okkur heldur var farið um morguninn til Árósa og hist fyrir utan vísindasafn sem er alveg ofan í einhverjum skóla að mér skilst og þar hlustuðum við á einhverja danska leiðsögumenn með 7 poka af kartöflum í hálsinum segja okkur frá nokkrum hlutum. Þeim fannst skynsamlegt að stoppa við 6 staði af 50 og vera með kortersræðu á hverjum þeirra í staðinn fyrir að leyfa manni að vafra um allt að eigin vild. Á stað númer 2 var ég komin með nóg og fór bara að skoða þetta sjálfur enda farið að langa í kartöflu á þessum tímapunkti.

Eftir þessa ferð sem var reyndar mjög fín var labbað niðrí bæ og borðað á einhverjum stað sem heitir koks eða cox eða eitthvað svipað en þar var brunch svokallað sem var nú bara svona lala. En við nánari eftirgrennslan að þá sáum við að drykkir voru ekki innifaldir í þessu svo ég og danskur félagi minn að nafni Karsten ákváðum að fá okkur eitthvað að drekka.
Ég ,,Ja godt dag, jeg vil fa et glas af.............(smellandi fingrum leitandi að orðinu)............orange juice"
stelpuræsknið eftir að hafa séð mig vera í vafa um orðið ,,yes do you want a big glass or a small glass?"
Ég, í sjokki yfir því að hún skuli hafa haldið að ég væri ekki dani ,, yes I would like the big glass thank you"
Svo sagði ræsknið að það væri kannski alveg eins gott að borga núna allt saman og þurfa ekki að standa í röð á eftir. Ákvað ég að gera það og sagði þá við hana ,,yes one buffet and one large glass of orange juice yes yes." ekki of glaður í bragði sá ég að hún tók að mér fannst ekki mjög stórt glas en hugsaði jæja það eru ekki öll glös svo sem eins og glasið heima hjá Sævari (það skal tekið fram að það er að mig minnir 0.7 lítrar og eitt svoleiðis vatnsglas í heimsókn hjá honum dugir yfirleitt alla heimsóknina.
Að venju setti ég kortið í raufina og stimplaði inn númerið. Svo kom kvittunin. Buffet 36 krónur, ok svo sem ekki neitt hræðilega hátt. En svo stóð orange saft eða eitthvað slíkt 42 krónur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!  og aftur  !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! og einu sinni enn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! næ næ næ holdt nu kjæft du...........klikkaða pige.
Ég bað hana vinsamlegast um að hætta við safann sem kostaði svipað og leigan á mánuði hjá mér og ekki nóg með það heldur kostaði sama glasastærð af vatni um 20 krónur. Mér datt í hug að þau væru með demantavatn en svo reyndist ekki vera en þá hefði verið hægt að réttlæta þessar upphæðir.
Það endaði með því að ég drakk ekkert með þessu og fór út grátandi og hlandblautur.

Eftir þessa helför ákváðum við eins og sönnum háskólanemendum sæmir að fara að fíflast í rúllustiganum í Magasín sem var þarna við hliðina. Ég á til myndir af því sem ég skal koma með síðar. Einnig fundum við vel fyrir aldrinum og hvað við vorum þroskuð þegar að við strákarnir fórum að máta kjóla uppvið okkur og kvennnærföt. Litum einnig girndaraugum á sokkabuxurnar en keyptum engar.

En aðaltilgangur þessarar árósaferðar var samt sem áður að fara á töfraflautuna eftir Mozart sem Íris hélt að væri Verdi hahahaha. Við skunduðum því tilbaka að óperuhúsinu og fengum miðana okkar og settumst í sætin (af hverju fann ég hjá mér þörf fyrir að taka það fram að við hefðum sest í sætin, er það ekki hin eðlilegi máti?). Ég var svo heppinn að vera í endasæti þannig að ég hafði legroom fyrir aðra löppina mína.
Svo hófst sýningin og ég er nú ekki mikill óperumaður þó að ég hafi nú gaman að klassískri tónlist en þar sem að MozartVerdi var þýskur að þá var þetta á þýsku. En Danirnir gerðu reyndar ráð fyrir því að ekki allir í salnum væru þýskumælandi og voru með svona textatæki fyrir ofan sviðið. En bölvaðir þrjótarnir gerðu hins vegar bara ráð fyrir að það væru Danir í salnum og 98% hlutfall er að mínu mati ekki nógu hátt. Textinn var semsagt á dönsku.

Þolinmæði rapparana í mínum hóp var hinsvegar þrotin eftir um það bil 40 mínútur og þá stungu þau af út í smók og ekki 5 mínútum síðar kom pása og þá lét undirritaður sig líka hverfa af sjónvarsviðinu. Var stefnan þá sett á miðbæinn aftur í verslunarferð og við stelpurnar (ég, Íris og Laufey) fórum ásamt strákunum í mollið sem er við lestarstöðina og fundum þar nokkrar búðir. Ég rambaði fyrir tilviljun inn í Dressmann og fjárfesti þar í þremur skyrtum sem ég var mjög ánægður með og Laufey gella keypti jakka og svona vesti einhvernveginn. Íris var burðardýr fyrir Laufeyju hahaha.

Svo um klukkan 16 að þá hittumst við fyrir tilviljun öll niðrí bæ eða semsagt Íslendingarnir og við Benni, Sævar, Ægir og Mads ákváðum að láta staðar numið og halda heim á leið.

Í morgun í dönskutíma spurði hún okkur svo að sjálfsögðu hvernig okkur hefði fundist og fyrir einhverja tilviljun töluðum við bara um fyrri hlutann hahahaha.
Þar sem ég hins vegar er með ágætt tóneyra að þá heyrði ég hvaðan lagið Hann Tumi fer á fætur kemur en það er úr þessari óperu og ég nefndi það við hana.

En blessaður dönskukennarinn lifir í sínum eigin heimi og sá ekki þegar að rappararnir ruddust rymjandi og ropandi, rekandi rassgatið rólega út í loftið því þau gengu nú ekki beint hljóðlega um þessar elskur á leiðinni út hahaha. Hún varð aldrei vör við það þegar að þau fóru út þó að þau sætu rétt hjá henni.
Sem betur fer er þó alltaf skemmtilegt í dönskutímum og við náum að halda fókusnum allan tímann og við erum alltaf með í umræðunni og tökum virkan þátt í henni (snúa skal öllu við sem sagt var í síðustu setningu hahaha:))

Dagurinn hinsvegar var frábær og gaman að vera sérstaklega með öllum bekknum og ekki bara okkur íslenska kjarnanum heldur líka dönunum aðeins fyrir utan stofuna í smá sprelli.

Ég veit ekki alveg hvað helgin mun bera í skaut sér en skólabarinn er nú rútína á föstudagskvöldum hjá manni og þar verður engin breyting á.

Læt þetta duga að sinni en vill vara fólk við að kaupa sprittkerti frá Ikea. Loginn á þeim er kannski 5 millimetra hár og þau brenna fljótt upp því miður.

Fyrsta skipti sem ég er óánægður með ikeavöru.

Sjáumst síðar dúllur og það styttist í myndafærslu.




» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 02:17:46 / Sibbi

Ennþá á lífi:)

Já vildi bara segja við þá sem skoða þetta og virðast vera þónokkrir að ég er enn á lífi og skal koma með færslu núna um helgina.
Var í Þýskalandi í dag með Ægi Skjóldal félaga mínum og það var helvíti fínt bara. Keypti slatta af prenthylkjum og svo gos og eitthvað af matvöru. Maður má reyndar ekki falla í þá gryfju að reikna þetta út á íslensku því að þá eru þetta ekki hagstæð kaup en miðað við horsensverð að þá voru þetta vissulega hagstæð kaup.
Var á skólabarnum áðan og jólabjórinn var að koma í hús og mikið af fólki og gott stuð. Slatti af hópnum mínum var þarna líka en þau fóru tiltölulega snemma. Eyddi þá bara kvöldinu í að tala við aðra sem ég þekki orðið ansi vel:)
Er hins vegar núna gjörsamlega að leka niður af þreytu og er að fara upp í rúm ef ég má hahahaha.


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 12:05:22 / Sibbi

Nokkrar myndir frá októbermánuði.

Þar sem að harmakvein aðdáenda minna heyrðist hátt núna í vikunni sem leið að þá ákvað ég að koma með smá myndablogg frá október mánuði. Eins og ég hef reyndar talað um hérna áður að þá er lífið í nokkuð föstum skorðum þannig að það hefur kannski ekki mikið gerst markvert. Eitthvað lítið varð úr ferðalagaplönum sem voru áætluð í frívikunni en það kemur kannski síðar.
Mig langar allavega helling til Randers til að skoða elvissafnið sem er þar. Þetta er semsagt tilkynning til þeirra sem vilja fara með mig þangað:)

En hættum þessu blaðri og komum með myndirnar:)


Þarna eru Benni og Ægir að skoða hestaklámssafnið mitt sem er reyndar umtalsvert hahahaha:)






Við héldum spilakvöld og ég vann ekki heldur Svanur hennar Laufeyjar. Ég hins vegar útnefndi mig sem Lover kvöldsins hahahaha (or I´d like to think that this means that:)).






Þarna var ég í einni af minni mörgum heimsóknum til Benna og Áslaugar. Brynja krútt vildi endilega sitja hjá stóra kallinum:)






Sigurlaug hans Ægis Skjóldal bakaði handa mér köku um daginn. Að sjálfsögðu var hún merkt mér. Þetta var ansi fallegt af henni og hún var kvöldsnakk hjá mér í þrjú kvöld, kakan það er að segja:).






Fer oft í gönguferðir hérna og þetta tré er í einum kirkjugarðinum sem er innan bæjarmarka Horsens. Synd bara hvað þessi mynd er lítil hérna á blogginu. Veðrið frábært eins og þið sjáið. Myndin var tekin 14. október.




Laufey dúlla hélt kökuboð í miðri fríviku og var það líka út af afmælinu hennar Írisar. Alltaf gott að heimsækja alla í þessum hópi sem maður er í og það sannaðist aftur í þessari veislu. Fór ekki svangur þaðan út. Smellti þessari geðveiku mynd af mér og henni (ok kannski ekki hin endanlega mynd hehehe:)).






Á föstudeginum í frívikunni að þá fór ég í langan labbitúr og þegar að ég kom niður á bryggju að þá var jólasveinninn og hans kona komin til lands. Það var ákaflega sérstakt að sjá þau þarna í svona góðu veðri. Þetta skilst mér að sé hefð í Horsens á þessum tíma.






Í þessari sömu gönguferð labbaði ég um margar ákaflega fallegar götur og reyndar var veðrið alveg frábært og líka hlýtt á sama tíma og það var beljandi rigning og fleira heima hahahaha.






Við skulum vona að þessi gata heiti ekki eftir fjármálaráðherra Bretlands:)






Sum húsin í þessum bæ eru ævintýri líkust í útliti finnst mér.





Enn sem komið er hef ég bara komið strákum upp í mitt rúm hahahaha.
Þarna er heiðursmaðurinn Ægir að ná sér í dvd myndir hjá mér.






Eins og sést að þá erum við alveg að elska efnafræði. Í sannleika sagt að þá elska ég reyndar efnafræði meira en eðlisfræði. Þarna eru Jakob og Michael áhugasamir um efnið:)
Snilldardrengir gjörsamlega.





Jibbí sibbí ég fékk að far í Bilka með Írisi og get keypt aðeins meira en kemst vanalega á vespuna:).






Þarna eru dönsku vinir okkar eitthvað að fíflast. Það vantar einn strák þarna en hann heitir Mads og við erum stærstir í bekknum:)





I have a thing for asian boys hahahahah:)
Þetta er áðurnefndur Michael.






Íris dúlla, sálufélagi í erfileikaumræðu um dæmin sem við þurfum að glíma við.








Danirnir eru miklir áhugamenn um að krota einhverjar other world order and reality á töflurnar í bekkjunum. Þarna er ég komin með ákveðið hlutverk og greinilega líka komin með tvíburabróðir hahahaha. Þeir eru reyndar algjörir snillingar í þessu og þetta er í sjálfu sér ekki merkileg mynd miðað við sumt sem þeir hafa sett á töfluna. Er reyndar alltaf ógeðslega fyndið.







Þarna voru ég og Íris nýhætt að gráta vegna vonleysis í efnafræði hahahaha.







Það er eitthvað við karlmennsku Sævars sem gerir það að verkum að maður getur ekki staðist hann:)






Eftir að hafa sýnt Sævari þennan hlýhug að þá ákvað ég að snúa mér að Írisi. Hún skynjaði að eitthvað var í vændum:)






Svo ég ákvað að kyssa hana bara þarna. Reyndar lætur hún sér fátt um finnast eitthvað á myndinni og hendurnar meira að segja alveg kyrrar:)
Efnafræðikennaranum fannst þetta hins vegar vera mjög fyndið. Snilldargaur.






Þetta er íslenski hlutinn sem er með mér í adgangskursus. Þetta er semsagt Gunnlaugur Karlsson og er úr Keflavík. Vissi reyndar hver hann var áður en við byrjuðum í bekknum og sá eini reyndar sem ég þekkti eitthvað aðeins.
Rosalega fínn strákur sem er sjaldnast sammála okkur í umræðum um lífsins gagn og nauðsynjar og borðar ekki sósur sem eru á annarra manna diskum (einkahúmor:))






Þessi hörkulegi en ljúfi piltur í raun heitir Sævar Gíslason og er að ganga alveg helvíti vel í raungreinunum. Það er ágætt því ég sit ekki langt frá honum í stærðfræði hehehe. Erum reyndar öll aðeins að ströggla í eðlisfræðinni.
Helvíti skemmtilegur piltur og frúin hans líka fín. Perlustrákur.






Íris Ösp Pétursdóttir. Sú þriðja úr hópnum sem er úr Keflavík. Ég reyndar man ekkert eftir henni að heiman og það er líka skrítið því að hún vann hjá Flugleiðum við nánast það sama og ég gerði hjá Suðurflugi. En við sitjum semsagt saman í öllum tímum og það er nú ekki slæmt að hafa rúsínu sér við hlið.
Maður hennar er Þórir Wardum úr Keflavík sem er bróðir Más Wardum og Már er jafnaldri minn.
Íris leynir helvíti mikið á sér og mörg gullkorn sem hafa komið út úr henni. Að maður tali nú ekki um hvað þetta er mikil kroppur. Á þessari mynd held ég að hún sé að fela cleavegið á sér en það var nú ekki ástæða þessarar myndar þó að það hafi verið það áður hjá mér hahahaha.







Benedikt Þór Jakobsson heitir þessi snilldarpiltur og sá eini sem ég vissi ekki að ég hafði hitt áður en skólinn byrjaði. Hann var nefnilega meðlimur í Round Table 12 og ég hef farið á nokkra fundi með þeim og hann hefur verið þar en ég hafði ekki spjallað sérstaklega við hann. Svo hjálpaði hann við flutningana úr gámnum yfir í sendibílinn sem ég var með og á meðan að á þeim flutningum stóð að þá vorum við báðir að spá í það hvaðan við þekktum hinn en það kom svo ekki í ljós fyrr en soldið seinna.
Þetta er krúttið mitt eins og ég segi stundum en einnig hugsa hann og konan hans oft til Sibba síns og bjóða honum í  mat. Alltaf gott að koma þangað og þau tvö eru alveg frábær.
Það skal tekið fram að hann var bara með þessi gleraugu í láni frá Jakob.






Þessi snillingur er margnefndur Ægir Skjóldal og kom aðeins seint í bekkinn því hann álpaðist til að eignast barn nánast daginn sem skólinn byrjaði og þá var hann ennþá á Íslandi bölvaður þrjóturinn hahaha.
Snillingur á tölvur og hefur hjálpað mér mikið með mína sem ekki var orðin vanþörf á get ég sagt ykkur.
Rosalega gaman að honum og margir snilldarfrasarnir oltið upp úr honum. Hef einnig fengið köku frá frúnni hans og er á leiðinni í kvöld til þeirra í mat í annað skiptið síðan að við kynntumst. Það er eins gott að reita hann ekki til reiði því að hann þekkir klikkainginn sem var að berja gæann í Kompási um daginn. Enda er hann með eitthvað ógnarvald yfir okkur öllum hahaha.







Og þá er nú komið að ljúfunni henni Laufey. Kemur frá sveitabænum Patreksfirði hahahaha en hefur nú verið í Reykjavík að mestu síðustu ár. Hún er algjör snillingur og ekkert lítið fyndin. Ein fyndnasta stelpa sem ég hef nokkurntímann kynnst og bætir það upp með ennþá meira smitandi hlátri. Rosalega góð stelpa og reyndar sæmilega myndarleg líka og gaman að hafa kynnst henni og manninum hennar. Hún býr einnig í langstærstu íbúðinni af okkur öllum.
Ákvað að prufa að taka af henni smá fyrirsætuljósmyndir og þessi heppnaðist bara ágætlega held ég.







Þessi óhugnanlega sæta stelpa heitir Tinna Rut Jónasdóttir og er með okkur í ensku, dönsku og stærðfræði. Ekki í eðlis og efnafræði, því miður því hún er bráðskörp og gengur vel í stærfræðinni og er einnig tiltölulega nýútskrifuð úr Versló þannig að efnið er ferskt í huga hennar. Maður var aðeins lengur að kynnast henni vegna þess að hún er ekki eins mikið með okkur og hin sem ég er búinn að telja upp en hún er, eins og hin, rosaleg fín og skemmtileg. Finnst alltaf eitthvað nett gaman að perrast í henni, sem hún reyndar hlær alltaf líka að.
Mjög indæl og hress og líka að mínu mati með sætt hár:)
Gotta love those short blondes híhíhí.







Þetta er Hófí okkar sem er einnig með okkur í hóp. Hólmfríður Vigfúsdóttir nákvæmlega. Er einnig bara með okkur í ensku, dönsku og stærðfræði. Búin að búa í Danmörku í talsverðan tíma þannig að hún er með tungumálið nánast fullkomið á okkar mælikvarða. Skemmtilega stelpa sem maður þekkir kannski minnst af Íslendingunum því miður. Hefur verið aðeins frá vegna smá veikinda hjá syninum sínum.
Þessi mynd er tekin í partíi sem við vorum í um daginn heima hjá Karsten.
Eins og sést er þetta helvíti sæt stelpa:)






Sævari gekk illa með eitt stærðfræðidæmi og ákvað að prufa hvort að þetta myndi hjálpa honum eitthvað. Það hafðist reyndar á endanum þannig að kannski er þetta töframeðalið hans hahahaha:)






Sætu stelpurnar mínar voru með kynningu á Galileo Galilei í dönskutíma um daginn. Þær stóðu sig vel en ekki eins vel og ég og Benni og Ægir um Martin Lúter hahaha. En svakalega voru þær sætar þegar að þær voru að þessu eins og sést augljóslega á þessari mynd.







Ég varð nú að hafa einhverja mynd af mér líka. Michael vinur minn tók þessa mynd af kjellinum:)







Michael ákvað að halda aðeins á Jakob. Það var bara fínt hjá honum og Benna leist ágætlega á það. Einnig sést í löppina á Laufey.







Ég á nú ekki mikið af myndum af Mads en þetta er semsagt sá sem vantaði á myndina af danavinum okkar fyrr í færslunni. Þetta er rosalega fínn strákur og við höfum kynnst vel undanfarið. Er 20 ára gamall og aðeins umfangsmeiri en ég. Ég segi alltaf að það sé nóg að við séum tveir í grúbbu því það eru samtals fjórir venjulegir menn.







Hinn árlegi alþjóðlegi dagur var haldin núna í vikunni sem leið. Þarna sést í básinn hjá Íslendingunum. Boðið upp á harðfisk, sviðasultu, kjötsúpu (mjög góð), flatkökur með hangikjöti og svartadauðaskot.







Enda þessi keppnisfærslu á mynd úr efnafræðitíma þar sem að kennarinn var að sýna okkur eitthvað kolsýrudót. En til að gera það að þá notaði hann Soda Stream............SODA STREAM!!!!!!. Það er ennþá í notkun greinilega í Danmörku. Hægra megin glittir aðeins í sjálft tækið. Ég á þessa fallegu hendi.



Þetta var nú síðasta myndin í bili. Látið nú heyra í ykkur hingað. Skyndilega datt það nefnilega niður eitthvað og þá nennir maður þessa eitthvað lítið og sérstaklega þar sem að allar þessar myndir eru inni á Facebook hjá mér. En núna er seinni hluti fyrri annar að hefjast og er það ágætis þröskuldur að yfirstíga.
Það sem ég ströggla mest með eins og ég hef áður komið inn á er eðlisfræðin en kannski rætist úr því fljótlega.
Hitti nefnilega á stelpu sem þekkir strák sem þekkir vel inn á þetta og hún ætlar að ræða við hann fyrir mig. Væri ágætt ef maður gæti náð allavega algerlega grunninum. Meira að segja það er erfitt og þá er erfitt að skilja það sem kemur á seinni stigum.

Veðrið er ennþá gott hérna en enginn mega hiti nema á milli kannski 10 og 17 og þá að sjálfsögðu ekki alvöru megahiti en þannig að kallinum líður vel. Labba reyndar ekki á stuttbuxum niðrí bæ:)

En núna læt ég þessu lokið í bili og ekki gleyma að segja að þið séuð á lífi hehehe:)

Sibbi pulsukall.



» 10 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 11:26:02 / Sibbi

Það er aldeilis.

Skyndilega fékk ég heilmikil viðbrögð frá ykkur elskurnar mínar. Þá skal ég ekki leggja þetta niður. Enda var það kannski ekki ætlunin. Læt þetta duga að sinni en skal koma með smá myndarblogg um helgina og kannski á morgun.

Elska ykkur öll:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 05:33:30 / Sibbi

Vetrarfrí framundan.

Núna er klukkan 7:22 á föstudagsmorgni og ég er búinn að vera í skólanum í um það bil 20 mínútur. Vaknaði eitthvað extra snemma á minn mælikvarða og dreif mig bara í skólann.

Verð að segja að þar sem ég er orðin mjög öflugur á facebook að þá nenni ég þessu bloggi orðið minna og minna verður að viðurkennast.

Fann smá hálsbólgu í gær en eitthvað hef ég náð að sofa hana úr mér sem betur fer.

Það sem ég á við með vetrarfrí er að það virðist vera hefð í Danmörku að taka svona miðannafrí í október í eina viku. Fyrst fannst mér þetta vera bölvað bull en það verður að viðurkennast að þetta er vika sem okkur öllum var farið að hlakka talsvert til. Stefnt er á hópferð til Þýskalands þar sem að Laufey og Svanur (par) verða í forystuhlutverki. Það hentar Sibba litla ágætlega svosem hehehe.

Fær að sitja með Sævari mínum og Guðrúni hans konu og þeirra dóttur í bíl í ferðinni miklu.

Enn er veðrið mjög gott hérna og ég hef komið hvern einasta dag í skólann annaðhvort í stuttermabol eða stuttermaskyrtu og ekki jakka. Það verður hins vegar að viðurkennast líka að ég bý mjög nálægt skólanum og örfáa daga hefði verið aðeins of kalt fyrir stuttermaklæðnaðinn ef ég hefði búið lengra frá skólanum.

Alltaf kemur það betur og betur í ljós þvílíkt frábært fólk þetta er sem ég er með í bekknum. Það gildir um alla Íslendingana og flesta Danina.

Það sem við höfum að sjálfsögðu mestar áhyggjur af er staðan á efnahagsmálum þjóðarinnar. "Hlakka" til að sjá hvað ég fæ í lokagreiðslu úr íbúðinni í dönskum krónum hehehe.

Hef ekki hlustað á eitt jólalag ennþá sem er mjög ólíkt mér á þessum árstíma enda hefur veðrið ekki kannski verið mjög jólalegt hérna. Kannski bara ágætt líka að hlusta á þau þegar að eðlilegt getur talist:)

Skilst að jólin hérna séu öðruvísi en heima en nánar um það síðar.

Lengi lifi vetrarfrí og þýskalandsferðir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Blessuð börnin í kringum mig
Vörubílar, vinnuvélar og önnur tæki.
Leirmunir til sölu